Monday, November 3, 2008

Læra?

Núna er surfthechannel bilað og ég er að fara yfir um. Ekki eins og ég hafi verið rosa spennt fyrir að horfa á einhvern þátt þegar að ég kom heim úr skólanum. En af því að það er ekki hægt þá finnst mér að ég bara veeerði að horfa á Grey's.
Þetta er bad shit. En ekki næstum því jafn bad og Fjöllin hafa vakað með Skildi Eyfjörð.
Ætli hann hafi bara vaknað einn daginn og fundist hann hafa getað bætt einhverju við þetta lag. Ekki það að mér finnst þetta lag hvort eð er grútleiðinlegt. Eins og flest allt með Bubba. 
Oh nuna var z að detta af lyklaborðinu mínu. Hefði ekki giskað á þann staf þar sem að hann er nú ekki undir miklu álagi. Langt síðan að ég hætti að kalla mig Zigga. Einu sinni bilaði þvottavélin okkar því að 60°var svo sjaldan notað. Gæti verið svipað dæmi hér.. Ætla að prófa að nota z meira þegar að ég er búin að laga þennan takka til að koma í veg fyrir þetta í framtíðinni.
-Zigga

1 comment:

.:Eyjan said...

Z þarf klárlega að notast meira.
En í rauninni er það zvoldið zkrítið að takkinn detti af zvona nýrri tölvu...ég er enn með allar mínar zetur